Órói Þróun
Námskeið í Unreal Engine 5 (Hopp og skopp í Maí)
Námskeið í Unreal Engine 5 (Hopp og skopp í Maí)
Couldn't load pickup availability
Viltu búa til þinn eigin tölvuleik? – Námskeið í Unreal Engine 5
Dagsetning: 11. til 18. maí
Hefur þig alltaf dreymt um að hanna þinn eigin leik en veist ekki hvar á að byrja? Nú er tækifærið! Hér er hnitmiðað byrjendanámskeið þar sem við stígum okkar fyrstu skref í hinum magnaða heimi Unreal Engine 5.
Á þessu námskeiði lærum við undirstöðurnar með því að smíða þrívíddar „hopp og skopp“ (platformer) leik frá grunni, í anda leikja eins og Super Mario Galaxy, Crash Bandicoot og Spyro.
Þú velur þína leið: Á námskeiðinu er lögð áhersla á sköpunargleði og frelsi. Þú getur valið um að:
- Fylgja mér eftir: Byggja nákvæmlega sama leik og ég sýni í kynningunum, skref fyrir skref.
- Hanna þinn eigin leik: Nota tæknina sem við lærum til að skapa þinn eigin einstaka heim og karakter innan sama þema.
Sama hvaða leið þú velur, þá endar þú námskeiðið með spilanlegan leik og tólin til að halda áfram að skapa!
Skipulag námskeiðsins
-
Þrjár beinar útsendingar: Gísli Konráðsson fer yfir umfjöllunarefni hvers dags, sýnir vinnubrögðin skref fyrir skref og byggir leikinn.
- Útsendingarnar verða 11.13 og 15 maí á milli 20:00 - 22;00
- Aðgangur að upptökum: Allar kynningar eru teknar upp. Þátttakendur fá sendan hlekk á upptökurnar strax að loknum tíma, sem er tilvalið til að rifja upp efnið eða horfa á þeim tíma sem hentar.
- Persónulegur stuðningur: Á meðan námskeiðinu stendur hafa nemendur beinan aðgang að Gísla. Hægt er að senda inn spurningar og fá aðstoð við hvers kyns vandamál sem upp kunna að koma við gerð leiksins.
1. Grunnhugmyndir og Unreal Engine 5
Við stígum okkar fyrstu skref í Unreal Engine 5 og könnum þá gífurlegu möguleika sem leikjavélin býður upp á. Áhersla er lögð á grunnatriði leikjahönnunar og hvernig við breytum óljósri hugmynd yfir í skipulagt hönnunarferli. Við leggjum traustan grunn sem gerir þér kleift að þróa hugmyndina þína áfram af öryggi.
2. Sköpun heima og umhverfið
Hér lærum við að glæða leikheiminn lífi. Við skoðum hvernig mismunandi leikmunir (assets) eru notaðir til að byggja upp umhverfi sem grípur spilarann. Farið er í gegnum borðahönnun (level design) þar sem við tengjum saman gott leikflæði og sjónræn hughrif til að skapa heildstæða upplifun.
3. Leikreglur og hegðun
Í lokatímanum smíðum við virka frumgerð (prototype). Við forritum hreyfingar og stjórntæki spilarans, bætum við áskorunum og hættum, og tengjum allt saman í eina leikjalykkju (game loop). Við ljúkum námskeiðinu á því að setja upp skilyrði fyrir sigri og tapi, svo úr verði raunverulegur og spilanlegur leikur.
Hvað er innifalið?
- Aðgengilegt nám: Allt kennt á netinu svo þú getur lært þar sem þér líður best.
- Verkefnamiðað: Þú endar með þinn eigin spilanlega leik.
- Stuðningur: Þú getur sent kennaranum spurningar á milli tíma ef þú festist eða vilt vita meira.
Engin fyrri reynsla af leikjaþróun nauðsynleg – bara forvitni og sköpunargleði!
„Athugið: Þátttakendur þurfa tölvu sem getur keyrt Unreal Engine 5 (Windows eða Mac).“
Um kennarann
Gísli Konráðsson hefur starfað við tölvuleikjagerð í um 20 ár og býr yfir víðtækri reynslu af öllum stigum þróunar. Hann hefur varið mestum hluta ferils síns sem Technical Artist, þar sem hann sérhæfir sig í að brúa bilið á milli listar, hönnunar og forritunar.
Gísli er vottaður Unreal Engine kennari (Certified Unreal Instructor) og hefur notað leikjavélina í yfir 15 ár.
Hann hefur komið að gerð margra af þekktustu tölvuleikjum heims, þar á meðal:
- Fortnite
- EVE Online
- Kards
- Dust 514
Auk þess að vinna hjá stórum leikjastúdíóum hefur Gísli mikla reynslu af frumkvöðlastarfi. Hann hefur stofnað og stýrt sprotafyrirtækjum og fylgt verkefnum alla leið frá fyrstu hugmynd að útgáfu. Nemendur njóta því góðs af dýpri innsýn í hvernig leikir eru í raun smíðaðir, hvort sem er hjá stórfyrirtækjum eða sjálfstæðum teymum.
